Sveitarfélagið Skagafjörður
83.fundur - atvinnu- og ferðamálanefndar
haldinn í Ráðhúsi, Skr., 25.5.2012
og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Bjarni Jónsson formaður, Viggó Jónsson varaform., Ingvar Björn Ingimundarson ritari, Gunnsteinn Björnsson áheyrnarftr., Árni Gísli Brynleifsson áheyrnarftr., Áskell Heiðar Ásgeirsson sviðsstjóri markaðs- og þróunarsviðs og Sigfús Ingi Sigfússon starfsm. mark.- þróunarsviðs
Fundargerð ritaði: Áskell Heiðar Ásgeirsson, sviðsstjóri markaðs- og þróunarsviðs


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 1202259 c- Beiðni um styrk
Niðurstaða fundar:
Árni Gunnarsson frá kvikmyndafélaginu Skottu og Ingileif Oddsdóttir skólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra komu til fundarins.  Fjallað var um stöðu mála varðandi uppbyggingu náms í kvikmyndagerð og öðrum skapandi greinum við FNV. 
Nefndin fagnar þeirri miklu grósku sem er í uppbyggingu nýrra námsbrauta við FNV, s.s. á sviði kvikmyndagerðar, íþróttaakademíu og plast- og trefjanáms.  Sérstaklega fagnar nefndin fyrirhugaðri uppbyggingu kvikmyndabrautar og skorar á stjórnvöld að láta ekki þar staðar numið heldur styðja við uppbyggingu námsframboðs við skapandi greinar, náms sem höfðar til beggja kynja og húsnæðis og aðstöðu fyrir námið.
2. 1203225 c- Samstarf Alþýðulistar og sveitarfélagsins árið 2012
Niðurstaða fundar:
Lögð fram drög að samningi milli Alþýðulistar og sveitarfélagsins um rekstur húsnæðis undir starfsemi Alþýðulistar í Varmahlíð.  Nefndin samþykkir fyrirliggjandi drög og fela sviðsstjóra að ganga frá samningi. 
3. 1112411 c- Úthlutun byggðakvóta
Niðurstaða fundar:
Lögð fram til kynningar svör Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis varðandi byggðakvóta þar sem ráðuneytið fellst á sjónarmið og rökstuðning sveitarfélagsins og samþykkir breytingartillögur þess.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 9:37