Sveitarfélagið Skagafjörður
80.fundur - fræðslunefndar
haldinn í Ráðhúsi, Skr., 4.9.2012
og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu: Bjarki Tryggvason formaður, Sigríður Svavarsdóttir ritari, Úlfar Sveinsson aðalm., Sigríður Garðarsdóttir fulltrúi Akrahrepps, Guðni Kristjánsson áheyrnarftr., Hanna Þrúður Þórðardóttir áheyrnarftr., Herdís Á. Sæmundardóttir fræðslustjóri, Anna Árnína Stefánsdóttir leikskólastjóri, Ágúst Ólason grunnskólastjóri og Elín Berglind Guðmundsdóttir áheyrnarftr. leiksk.kennara
Fundargerð ritaði: Herdís Á Sæmundardóttir, fræðslustjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 1206157 c- Fyrirkomulag fæðismála í Ársölum og Árskóla
Niðurstaða fundar:
Fræðslunefnd samþykkir að ganga til samninga við Skagfirskan mat ehf um framleiðslu hádegisverðar fyrir Árskóla eldra stig og Ársali eldra stig en Videosport ehf um framleiðslu hádegisverðar fyrir Árskóla yngra stig og Ársali yngra stig. Fyrirkomulag þetta gildir til 31. maí 2013 hvað grunnskólann varðar en til 12. júlí 2013 vegna leikskólans. Jafnframt er samþykkt að ákvörðun um framtíðarfyrirkomulag liggi fyrir í lok apríl 2013.
2. 1205002 c- Jafnréttisáætlun 2012-14 kynning
Niðurstaða fundar:
Jafnréttisáætlun Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2012-2014 var samþykkt á fundi sveitarstjórnar þann 25. janúar 2012. Áætlunin sem er í 8 liðum gildir fyrir alla starfsemi sveitarfélagsins. Fræðslunefnd beinir því til stjórnenda stofnana fræðslusviðs að kynna starfsmönnum sínum áætlunina og gera ráðstafanir til að hrinda ákvæðum hennar í framkvæmd eftir atvikum.
3. 1208199 c- Skilgreining á skóladögum í grunnskólum
Niðurstaða fundar:
Lagt fram erindi frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu um skilgreiningu á skóladögum í grunnskólum.
4. 1208172 c- INLEARN - Comenius Regio
Niðurstaða fundar:
Í febrúar s.l. sóttu fræðsluþjónusta Skagafjarðar í samvinnu við fræðsluþjónustu sveitarfélagsins Óðinsvéa í Danmörku um styrk til einnar af menntaáætlunum Evrópusambandsins, Comenius Regio, sem er áætlun um samstarf svæða í Evrópu. Verkefni þetta hlaut jákvæðar undirtektir og hefur Fræðsluþjónusta Skagfirðinga hlotið rúmlega 6.5 milljón króna styrk til verkefnisins sem sótt var um. Verkefnið lýtur að því að rannsaka aðferðir stjórnenda og fagfólks í skólakerfinu við að skipuleggja áhugavert og hvetjandi lærdómsumhverfi fyrir börn á aldrinum 5-8 ára. Fræðslunefnd fagnar þessum styrk og óskar þátttakendum og skólasamfélaginu öllu velfarnaðar í verkefninu.
5. 1207117 c- Umsóknir um framlög til eflingar tónlistarnámi
Niðurstaða fundar:
Umsóknarfrestur um framlög frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga um framlög til eflingar tónlistarnáms fyrir skólaárið 2012-2013 rann út þann 11. ágúst s.l. Á þeim tíma hafði einungis 1 nemi sótt um framhaldsnám við Tónlistarskóla Skagafjarðar, enda skráningu ekki lokið. Jöfnunarsjóður hefur góðfúslega orðið við beiðni fræðslustjóra að senda umsókn til sjóðsins þegar skráningu í tónlistarnám er lokið.
6. 1208211 c- Nemendafjöldi 2012-2013
Niðurstaða fundar:
Lagðar fram tölur um fjölda nemenda í leik- grunn- og tónlistarskóla eins og þær líta út í dag.
7. 1209020 c- Ósk um skólaakstur frá Hólum í Varmahlíð
Niðurstaða fundar:
Málið kynnt og rætt. Ákvörðun frestað.
8. 1209021 c- Nýtt skipurit
Niðurstaða fundar:
Nýtt skipurit kynnt.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:20